Hafþór Þórarinsson
Customer Success Engineer hjá 50skills
Sjálfvirknivæðing ferla: verkferlar með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.
Bakgrunnur í forritun. Tónlistarmaður í frístundum.
Um mig
Ég heiti Hafþór og hef gaman af því að einfalda vinnuna fyrir fólkið sem sinnir henni. Á sextán árum hjá Flugfélagi Íslands og Icelandair fór ég frá innritunarborðinu á Egilsstaðaflugvelli yfir í vefmál, hugbúnaðarþróun og tækniteymisstjórn, og sjálfvirknivæddi ferla og tengdi saman kerfi á leiðinni.
Frá því í ágúst 2026 hef ég starfað sem Customer Success Engineer hjá 50skills, HR-sjálfvirknilausninni sem ég vann mikið með hjá Icelandair. Þar hjálpa ég viðskiptavinum að byggja verkferla með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.
Ég er menntaður grunnskólakennari með áherslu á tónlist, leiklist og dans og erlend tungumál. Utan vinnu er ég oftast að búa til tónlist eða í körfubolta.
Ferill
-
2026–
Customer Success Engineer 50skills
Sjálfvirknivæðing HR-ferla: verkferlar með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.
-
2026
Tech Lead, Employee & Workplace Icelandair
Fór aftur í hugbúnaðarþróun þegar vöruteymi voru stofnuð hjá Icelandair.
-
2022–2025
Lausnastjóri innri lausna Icelandair
Tæknilegur eigandi nokkurra aðkeyptra kerfa. Bætti og sjálfvirknivæddi innri ferla með Power Apps og Power Automate, meðal annars samþættingar milli kerfa, og vann mikið að fjöldaráðningum í 50skills Journeys.
-
2020–2022
Forritari, Stafræn þróun Icelandair
Sérfræðingur í kerfum Flugfélags Íslands við sameininguna við Icelandair. Í vinnuhópnum sem innleiddi Loftbrú, afslátt stjórnvalda af innanlandsflugi, á vef Flugfélags Íslands. Framendaforritun á Maintener-kerfinu í React, sem síðar var endurskrifað í TypeScript, ásamt smá .NET-bakendavinnu.
-
2015–2020
Vefsérfræðingur Flugfélag Íslands
Þróun og viðhald vefsins, samfélagsmiðlar og verkefnastjórnun með utanaðkomandi vefstofu. Síðar eigandi nokkurra kerfa, þar sem bókunarvél vefsins var stærst. Smíðaði Power App fyrir útgjaldaskráningu sem var tekið upp hjá allri Icelandair-samstæðunni, það fyrsta af mörgum.
-
2010–2015
Innritun, þjónusta og ferðaskrifstofa
Byrjaði í flugbransanum við innritunarborðið á Egilsstaðaflugvelli og vann síðan við þjónustu og á ferðaskrifstofu.
Menntun
- Diplóma í forritun, NTV 2019–2021
- B.Ed. í grunnskólakennarafræðum, Háskóli Íslands 2010–2013
Tónlist, leiklist og dans, og erlend tungumál - Áður: HTML og CSS, upptökur í Pro Tools og ein önn í tölvunarfræði
Tónlist
Ég er sjálflærður gítarleikari, spilaði á hljómborð í nokkur ár og hef gaman af að syngja, meðal annars í kórum. Ég sem lög og hef tekið upp töluvert af eigin tónlist, bæði frumsamin lög og ábreiður.
Hafa samband
Best er að ná í mig með tölvupósti eða á LinkedIn.